Eruð þið búin að heyra lagið hjá Baggalút um Þjóðhátið???
Hér er textinn....
Þjóðhátíð '93.
Þar var ég – og líka þú.
Ölir menn í leit að illa girtum meyjum.
Planið að sverfa burt sveindóminn
á þjóðhátíð í Eyjum.
Sleitulaus hátíðahöld.
Hælalaus, ámigin tjöld.
Dalverpið alsett gallspúandi greyjum.
Planið að álpast á ástina
á þjóðhátíð í Eyjum.
Kófdrukkið kvennaval
kaffærir Herjólfsdal – þrjá daga á ári.
Slíkt ber að nýta sér.
Því skaltu flýta þér
og reyna að góma mey
meðan þær geta ekki hlaupist burt úr Heimaey.
Yfirfullt unglingastóð
með ólyfjan og hverskyns viðbjóð
eigrar um dansgólfið í dauðateygjum.
Planið að skemmta sér þokkalega
á þjóðhátíð í Eyjum.
Í brekkunni ég brölti til þín
og ég bauð þér pent að skríðí tjaldið til mín.
Við enduðum í erótískum svefnpokaslag
á meðan Árni Johnsen jarmaði svona lag.
Að lokum rann víman úr mér
en hvorki fann símanúmer
né þig í hrúgaf úldnum sportsokkum og -treyjum.
Ég get ekki munað hver setti í hvern
á þjóðhátíð í Eyjum.
Kengdrukknar kellingar
kaffæra Herjólfsdal – þrjá daga á ári.
Slíkt ber að nýta sér.
Því skaltu flýta þér
og reyna að góma eitt grey
meðan þær geta ekki synt á brott úr Heimaey.
Hvað á svo að gera um verslunarmannahelgina?
Ég ætla nú bara að vera í DK

Er sko að fara í kvöld!!!!!
Bæjó Sirrý